Námskeið um stöðumat erlendra nemenda

Minni á að námskeið um stöðumat erlendra nemenda, sem var fellt niður í mars hefur nú verið tímasett þriðjudaginn 8. september næstkomandi. Minnt verður á námskeiðið aftur í ágúst og póstur sendur til skólanna.

Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Námskeið um stöðumat erlendra nemenda

Tími til að lesa

Lestrarátak aprílmánaðar, sem mennta- og menningarmálaráðuneyti hrundu af stað, í upphafi mánaðar er í fullum gangi. Nú er efni síðunnar líka komið á pólsku og ensku. Endilega að benda erlendum nemendum á þetta efni, sem bæði er á vef og facebooksíðu. Opnast hér

Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Tími til að lesa

Google classroom. Upplýsingar til foreldra á pólsku

Donata, pólskur kennsluráðgjafi í Kópavogi hefur þýtt upplýsingar til foreldra um Google classroom á pólsku. Slóðin er hér og fer einnig undir hlekkinn Efni fyrir kennara hér til hliðar. Kærar þakkir Donata!

Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Google classroom. Upplýsingar til foreldra á pólsku

Að læra íslensku heima

Nú þegar allt skólahald er með öðrum hætti en venjulega er gott að hvetja nemendur með annað heimamál en íslensku til að finna leiðir til íslenskuþjálfunar heima. Donata H. Bukowska hefur tekið saman nokkrar leiðir og útbúið fyrirmæli til nemenda á íslensku og pólsku. Um að gera að dreifa til nemenda. Hér má finna skjalið – og kærar þakkir Donata!

Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Að læra íslensku heima

Byggjum brú – frá grunnskóla í framhaldsskóla

Hér má finna hlekk í nýtt skjal sem við Sigríður Ásta Hauksdóttir, námssráðgjafi útbjuggum að ósk skólameistara framhaldsskólanna og fræðslustjóra á svæðinu. Þar má meðal annars finna eyðublöð sem gæti verið gott fyrir erlenda nemendur að fylla út með kennara sínum eða námsráðgjafa um stöðu í íslensku og þá aðstoð sem viðkomandi hefur haft í unglingadeild grunnskólans. Tilgangur vinnunnar var að grunn- og framhaldsskólarnir á svæðinu ættu sameiginleg eyðublöð til að nota við skólaskil grunn- og framhaldsskóla fyrir þá nemendur sem vildu eiga nánari skáningu á stöðu sinni við skólaskil. Skjalið má lesa hér

Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Byggjum brú – frá grunnskóla í framhaldsskóla

Upplýsingar til erlendra foreldra um viðbrögð við kvíða barna vegna covid veirunnar

Ég hef fengið sendar upplýsingar á pólsku og ensku frá menntasviði Kópavogsbæjar um hvernig foreldrar geta unnið með kvíða barna sinna vegna covid veirunnar. Ég hef sent allar þessar upplýsingar til grunn- og leikskólastjóra bæjarins, ef þeir vilja setja þær á heimasíður/fésbókarsíður skólanna. Einnig gott fyrir erlenda foreldra að vita af íslensku covid-síðunni, þar sem auðvelt er að lesa um stöðu mála hér á landi. Þar eru upplýsingar m.a. á ensku, spænsku, pólsku, arabísku og tailensku.
Slóðin er hér.

Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Upplýsingar til erlendra foreldra um viðbrögð við kvíða barna vegna covid veirunnar

Reykjaskóli

Hér til hægri á síðunni er tengillinn Efni fyrir kennara og þar undir er nú kominn hlekkur með heitinu Um Reykjaskóla en þar má finna upplýsingar sem senda þarf heim til foreldra fyrir Reykjaferðir 7. bekkinga. Er nú til á arabísku, ensku og pólsku.

Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Reykjaskóli

Upplýsingar um Reykjaskóla á arabisku

Í mörgum skólum er það hluti af skólastarfi í 7. bekk að nemendur fari í skólabúðir að Reykjum við Hrútafjörð. Reykjaskóli hefur átt upplýsingar um skólastarf og útbúnað sem nemendur þurfa að hafa með sér á ensku. Nú erum við búin að þýða þessar ensku upplýsingar á arabísku. Þær má sjá og lesa hér

Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Upplýsingar um Reykjaskóla á arabisku

Einn leikskóli, mörg tungumál

Undir hlekkinn Leikskólar hér til hægri er nú kominn bæklingur fá Reykjavíkurborg sem ber heitið Einn leikskóli, mörg tungumál en þar er að finna leiðbeiningar um hvernig fylgjast má með framförum barna sem eiga annað móðurmál en íslensku og skrá þær.

Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Einn leikskóli, mörg tungumál

Frístundastyrkur 2020

Í upphafi hvers almanaksárs endurnýjast frístundastyrkur, bæði upphæð hans og þeir árgangar barna sem styrkurinn nær til. Fyrir árið 2020 hefur upphæðin verið ákveðin 40.000 krónur og það eru börn fædd á árunum 2003 – 2014 sem eiga rétt á nýtingu frístundastyrks. Hér eru upplýsingar um styrkinn uppfærðar á arabísku, ensku, lettnesku og pólsku.

Birt í Uncategorized | Slökkt á athugasemdum við Frístundastyrkur 2020