Greinasafn fyrir flokkinn: Uncategorized
Upplýsingar um Reykjaferð á vietnömsku
Þegar fleiri leggja hönd á plóg bætist smám saman í gagnabanka fyrir kennara og erlenda nemendur. Nú hefur Lieu Thuy gefið mér leyfi til að setja hér inn upplýsingar um Reykjaferð, sem hún hefur þýtt á víetnömsku. Bestu þakkir Lieu! … Halda áfram að lesa
Skýrsla um skólaárið 2019-2020
Nú er tilbúin skýrsla um helstu verkefni og starf með nemendum af erlendum uppruna í grunnskólum Akureyrar á síðasta skólaári. Hana má lesa hér
Námskeið fellt niður að sinni
Vegna fjarlægðartakmarkana og stöðu covid í samfélaginu hefur verið ákveðið að fella niður námskeið um stöðumat erlendra nemenda, sem hafði verið dagsett þann 8. september n.k. Í upphafi átti námskeiðið að fara fram í marsmánuði en nú ætlum við að … Halda áfram að lesa
Nýjasti túlkalisti Alþjóðastofu á Akureyri
Hér er hlekkur að túlkalista Alþjóðastofu.
Drög að stefnu
Starfshópur hefur skilað mennta- og menningarmálaráðherra drögum að stefnu um menntun barna og ungmenna með fjölbreytan tungumála- og menningarbakgrunn. Markmið vinnu þeirra var að greina stöðu þess fjölbreytta hóps í menntakerfinu, setja fram tillögur til úrbóta og hugmndir um aðgerðir … Halda áfram að lesa
Námsmat/verkefni
Íris í Brekkuskóla deildi með mér verkefni sem hún vann upp úr öðru sem er hér á vefnum undir Námsmat. Nú er það komið í Forms útgáfu og hér er hlekkur að því. Kærar þakkir Íris!
Verkefni á fjölmenningarsíðu Kópavogs
Undir flipann Efni fyrir kennara er nú kominn hlekkur á fjölmenningarsíðu Kópavogs. Þar er að finna ýmis verkefni sem henta nemendum sem eru að læra íslensku, bæði í leik- og grunnskóla.
Skil milli grunnskóla og framhaldsskóla
Ef kennarar og námsráðgjafar eru að vinna með erlendum nemendum að upplýsingagjöf milli skólastiga bendi ég á skjal sem er hér til hægri á síðunni, Brú milli grunn- og framhaldsskóla, en þar (á bls. 5-6) má finna eyðublöð sem gætu … Halda áfram að lesa
Evrópski tungumálaramminn
Undir flipann Efni fyrir kennara hér til hægri er kominn evrópski tungumálaramminn en þar er að finna viðmið um stöðu í tungumálanámi sem hægt er að nota sem matsviðmið. Námskrá í íslensku sem öðru tungumáli er nú í endurskoðun og … Halda áfram að lesa
Google classroom – enska
Undir flipann Efni fyrir kennara, hér til hægri er nú komið skjal með upplýsingum til foreldra um google classroom á ensku. Var áður komið á pólsku á sama stað.