Nú eru helstu upplýsingar um grunnskóla Akureyrarbæjar komnar á pólsku. Þær má sjá hér
Upplýsingar um grunnskólana á pólsku
Pólskur orðalisti í þjóðfélagsfræði
Undir flipann Pólska er kominn íslensk-pólskur orðalisti úr þjóðfélagsfræði, unninn í grunnskólanum í Sandgerði.
Orðaforðalisti
Menntamálastofnun hefur gefið út Orðaforðalista, ætlaðan foreldrum og leikskólakennurum. Hann getur einnig nýst kennurum erlendra nemenda til að fylgjast með og efla íslenskan orðaforða þeirra.
Listinn er rafrænn og hann má einnig prenta út. Fyrirhugað er að gefa út myndir til að styðja við orðalistann. Hann má sjá hér
Upplýsingar um grunnskólana og starf þeirra
Í vetur setti ég saman almennar upplýsingar um grunnskólana á Akureyri og ýmsa þætti í starfi þeirra. Var að klára að gera þetta aðgengilegt og hér er það komið á ensku og í júlí verður lokið við þýðingar á pólsku og tailensku. Ensku útgáfuna má sjá hér
Viðbætur undir pólska flipanum
Ég hef verið að bæta við skjölum undir flipann Pólska. Þar eru nú komnir íslenskir – pólskir orðalistar og pólskar hugtakaskýringar við kafla þrjú til átta í bókinni Á ferð um samfélag. Það er Emilia Mlynska sem á heiðurinn af þessari góðu vinnu – og einnig þýðingu á upplýsingum vegna Reykjaferða 7. bekkinga sem einnig eru komnar undir sama flipa.
Myndir, orð og framburður
Einfaldur og góður vefur til þess að fá grunnorðaforða (nafnorða) og hlusta á réttan framburð. Hægt að skoða hér
Skýrsla skólaársins 2016-2017
Skýrslu um helstu verkefni á síðasta skólaári má lesa hér
Kjalnesingasaga
Borghildur Sigurðardóttir hefur gert útdrátt úr Kjalnesingasögu sem ég bað hana um að fá að setja hérna á vefinn. Hann er nú kominn undir flipann Aðlagað námsefni. Kærar þakkir Borghildur!
Góð aðstoð fyrir pólsku unglingana okkar
Emilia Mlynska hefur nú sett saman orðalista og útskýringar á hugtökum úr bókunum Lýðræði og tækni (bls. 4-18) og Styrjaldir og kreppa (bls. 42-61). Vonum að þessi góða vinna verði vel nýtt.
Á ferð um samfélag – pólskir orðalistar
Emilia Mlynska hefur útbúið orðalista með útskýringum á hugtökum á pólsku úr 4.
og 5. kafla bókarinnar Á ferð um samfélag. Kærar þakkir Emilia!
Orðalistana má skoða hér, 4. kafla og 5. kafla.