Tenglasafn á efni tengt jólum og aðventu

Ég minni á að hér neðarlega til hægri á síðunni er tenglasafn inn á ýmis verkefni og fróðleik um aðventuna og jólin. Þar er t.d. aðventusaga, þar sem lesa má einn kafla á hverjum degi – eða lesa hana bara eins og hverja aðra jólasögu.Myndaniðurstaða fyrir christmasd decoration, clip art

Birt í 2017 | Slökkt á athugasemdum við Tenglasafn á efni tengt jólum og aðventu

Um íslensku jólasveinana – á pólsku

Einhver góður þýðandi, sem ég veit því miður ekki hver er, hefur sett upplýsingar um íslensku jólasveinana á pólsku á netið.
Ég tók mér það bessaleyfi að raða þeim saman í eitt handhægt skjal handa pólskum nemendum og  það má nálgast hér: um íslenska jólasveina á pólsku

Birt í 2017 | Slökkt á athugasemdum við Um íslensku jólasveinana – á pólsku

Ný verkefni

Hér fyrir neðan eru hlekkir á verkefni sem Hekla Hannibalsdótir, verkefnastjóri hjá Kópavogsbæ, hefur gert og leyft mér að birta hérna á vefnum. Mörg góð verkefni sem þið getið nýtt fyrir nemendur ykkar.  Kærar þakkir Hekla!
Jólaorðaleit
Rímorð – samstæðuspil
Fótboltapúsl
Söguspjöld
Æfingabók í málfræði

Birt í 2017 | Slökkt á athugasemdum við Ný verkefni

Stöðumat

Oft byrjum við á því að kenna annars máls nemendunum okkar íslensku þematengt og hugsum þá um orðaforða daglegs máls, til þess að auðvelda nemendum að tjá sig og skilja  algengan orðaforða og svo skólaorðaforða og þau orð sem nemendur þurfa að þekkja og skilja þar.
Þegar lengra líður bætast margir þættir við íslenskukennsluna, t.d. einföld málfræði og hugtök hennar, hugtök námsgreina, við viljum kanna lesskilning og lesfærni o.s.frv.
Núna var ég að búa til stöðupróf fyrir nemanda sem er búinn að dvelja hér nokkurn tíma og ákvað að skoða nokkur hæfniviðmið íslensku 4. bekkjar í Aðalnámskrá grunnskóla og sjá hvernig það gengi. Ef einhver vill skoða eða nýta sér þetta matstæki er það að finna hér

Birt í 2017 | Slökkt á athugasemdum við Stöðumat

Gagnvirkur vefur í íslensku

Fjölbreytt verkefnasöfn sem þjálfa ýmis atriði í málnotkun, orðaforða, stafsetningu og málfræði. Verkefnin hafa verið valin m.t.t. námsþátta á hverju aldursstigi.
Slóðin er hér

Birt í 2017 | Slökkt á athugasemdum við Gagnvirkur vefur í íslensku

Upplýsingar um stoðþjónustu grunnskólanna á ensku, pólsku og tailensku

Nú eru komnar þýðingar á upplýsingum um stoðþjónustu og sérdeildir grunnskólanna og á ensku, pólsku og tailensku.
Upplýsingarnar má lesa hér á íslensku, ensku, pólsku og tailensku.

Birt í 2017 | Slökkt á athugasemdum við Upplýsingar um stoðþjónustu grunnskólanna á ensku, pólsku og tailensku

Túlkalisti

Túlkalista Alþjóðastofu á Akureyri sem gildir frá september mánuði 2017 má sjá hér.

Birt í 2017 | Slökkt á athugasemdum við Túlkalisti

Uppfærsla af heftinu Samantekt fyrir kennara

Nú þegar hef ég þurft að uppfæra heftið Samantekt fyrir kennara og nokkrir nýir hlekkir hafa bæst við af góðu efni sem ég gleymdi í fyrstu umferð. Þar má nefna þemaheftin Íslenska fyrir mig  fyrir byrjendur og Söguskjóðuna fyrir eldri nemendur og nýjan pólskan orðalista frá Emiliu Mlynska þar sem eru hugtakaskýringar á pólsku við Ljóð í tíunda.   Allt nauðsynlegar viðbætur sem nú eru komnar inn í heftið á hlekknum hér fyrir neðan.

Myndaniðurstaða fyrir reading

 

Birt í 2017 | Slökkt á athugasemdum við Uppfærsla af heftinu Samantekt fyrir kennara

Að hverju þurfum við að huga?

Nú hef ég tekið saman ýmsar upplýsingar sem hafa verið hér og þar á þessum vef og komið þeim saman í eitt hefti sem ég vona að nýtist kennurum sem eru að fá nýja erlenda nemendur í bekkinn sinn. Helstu þættir þessarrar samantektar eru:
**  Móttökuviðtal
**  Hvaða efni er til fyrir erlenda nemendur?
**  Hefur námsefni á unglingastigi verið aðlagað?
**  Orðalistar og hugtakaskýringar
** Stöðumat og einstaklingsnámskrár
**  Kennsluaðferðir og leikir
**  Samskipti við heimili og foreldra
**  Jólin
** Vefur
Samantekt fyrir kennara – endurskoðuð 20. september:  sjá hér

Birt í 2017 | Slökkt á athugasemdum við Að hverju þurfum við að huga?

Upplýsingar um grunnskólana á tailensku

Nú erum við búin að fá þýðingu á helstu upplýsingum um grunnskólana á Akureyri á tailensku. Fyrr í sumar komu sömu upplýsingar á ensku og pólsku hér inn á síðuna.
Tailenskuna má sjá hér

Birt í 2017 | Slökkt á athugasemdum við Upplýsingar um grunnskólana á tailensku