Fimmtudaginn 6. sept. og föstudaginn 7. september var kennurum leik- og grunnskóla boðið upp á fræðslufund sem Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur, var með um börn sem hafa orðið fyrir áföllum af einhverju tagi. Hann ræddi um hvernig það getur lýst sér í skólastarfinu og hvernig kennarar geti sem best brugðist við.
Þátttaka var góð og alls mættu tæplega 60 kennarar til að hlusta á Guðbrand og gerðu góðan róm af umfjöllun hans.
Fræðslufundir um nemendur sem hafa upplifað áföll
Uppfærð handbók
Handbók fyrir kennara sem eru að taka á móti erlendum nemanda/hafa erlenda nemendur í bekknum sínum hefur nú verið uppfærð. Nýja útgáfan er undir tengli hér til hægri Efni fyrir kennara.
Nýr tengill
Nú er kominn tengill hér til hægri á síðunni, inn á vefinn VELKOMIN, en hann er gott að nota með erlendum nemendum og foreldrum fyrstu skóladagana. Endilega kynnið ykkur hann, ef þið hafið ekki notað hann áður.
Sumarlæsisdagatal Menntamálastofnunar
Menntamálastofnun hefur gefið út sumarlæsisdagatal þar sem bent er á ýmsar skemmtilegar og óhefðbundnar leiðir til að styðja við lestur krakka í sumarleyfi. Dagatalið var gefið út bæði á ensku og pólsku, auk íslensku.
Skýrsla skólaársins 2017-2018
Í lok hvers skólaárs er gott að líta yfir farinn veg og skoða helstu verkefni og áherslur vetrarins. Nú er komin skýrsla yfir skólaárið 2017-2018 og hana má lesa hér.
Ég þakka kennurum, nemendum og foreldrum fyrir samstarf vetrarsins og vona að allir njóti sumarsins vel.
Quizlet tenglar
Þær Halla og Erna, kennarar í Brekkuskóla, sendu mér quizlet tengla sem geta nýst nemendum sem eru að læra íslensku vel. Kærar þakkir stelpur og tenglana má sjá hér!
Stöðumat tvö
Fyrr á þessu skólaári gerði ég stöðumat sem ég hef merkt nr. tvö, þar sem það er hugsað sem framhald af stöðumati sem ég hafði unnið fyrir nemendur sem hafa verið að læra íslensku í nokkra mánuði. Þetta nýrra mat komst aldrei á réttan stað hér á síðunni en nú er það komið undir flipann „Námsmat“ hér fyrir ofan. Getur hugsanlega nýst einhverjum nú á vordögum.
Föstumánuður muslima – ramadan
Þetta árið hefst ramadan þann 16. maí og lýkur 14. júní. Samkvæmt muslimsku tímatali hefst hátíð við sólarlag næsta dags á undan, svo eflaust munu margir fagna ramadan við sólsetur í kvöld, þann 15. maí.
Samkvæmt tímatali muslima er ramadan alltaf á sama tíma en það er vegna þess að það fylgir tunglárinu en gregorískt tímatal fylgir gangi sólar. Því færist ramadan til í okkar dagatali um 11-13 daga ár hvert. Þannig mun ramadan hefjast 6. maí árið 2019 og 24. apríl árið 2020. Halda áfram að lesa
Myndaorðabækur á ýmsum málum
Á norsku síðunni Tema Morsmål má m.a. finna myndaorðabækur á ýmsum tungumálum. Íslenska er því miður ekki þar á meðal en mörg móðurmál nemenda okkar, s.s. pólska, tailenska, arabíska, rússneska o.fl.
Góð síða til að heimsækja og tengja hugtök og orð við móðurmál nemenda.
Fögnum íslensku sem öðru tungumáli
Mánudaginn 7. maí n.k. mun Ísbrú, Félag kennara sem kenna íslensku sem annað tungumál, standa fyrir málþingi í safnaðarheimili Háteigskirkju. Dagskráin er fjölbreytt og spennandi, þar sem fulltrúar frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, sveitarfélögum, Háskóla Íslands, Menntamálastofnun og víðar að, munu halda stuttar framsögur.
Dagskrána má sjá hér