Greinasafn fyrir flokkinn: Uncategorized
Pólskum börnum boðið á jólaskemmtun
Laugardaginn 7. desember hittust um 40 pólsk börn með foreldrum sínum í Rósenborg til að fagna komandi jólum og njóta samveru. Anna, sem kennir krökkunum pólsku, skipulagði þessa jólastund og foreldrar mættu með góðgæti til að bjóða uppá. Jólasveinninn leit … Halda áfram að lesa
Sænskur texti og þýðing á Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum
Iðunn Kjartansdóttir hefur tekið saman þýðingu Heimis Pálssonar á Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum, á sænsku og sendi mér. Hér er hlekkur á hana. Þakkir til Iðunnar og að sjálfsögðu Heimis Pálssonar!
Og hér má lesa um jólasveinana á frönsku!
Við eigum ekki mikið af upplýsingum fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra á frönsku. En með aðstoð Önnu Kristínar, kennara í Giljaskóla, höfum við fengið leyfi til að birta þýðingu Guðrúnar Önnu Matthíasdóttur á ljóði Jóhannesar úr Kötlum um jólasveinana. Þýðingu … Halda áfram að lesa
Jólasveinarnir okkar. Upplýsingar á spænsku
Ákaflega gaman þegar einhver hefur samband og býðst til að leggja hönd á plóg við að miðla upplýsingum og þýða efni. Yairina Rodriguez sem vinnur á leikskólanum Hulduheimum/Seli, er nú búin að setja saman texta á spænsku um íslensku jólasveinana. … Halda áfram að lesa
Viðbót: um jólasveina og hyski þeirra á dönsku
Það er gaman þegar kennarar vilja leggja hönd á plóg og Harpa Friðriksdóttir sendi mér skemmtilegt efni sem henni áskotnaðist um jólasveinana á dönsku. Því miður vitum við ekki hver þýðandinn er, svo ef einhver hefur upplýsingar um það má … Halda áfram að lesa
Minnt á ýmis jólaverkefni
Sendi kennurum póst í dag þar sem ég minni á ýmis verkefni og fróðleik sem tengd eru jólahaldi. Hér á vefnum er bæði að finna upplýsingar um íslenska jólasiði og eins um siði og venjur annarra landa. Jólahlekkur er hér … Halda áfram að lesa
Um íslensku jólasveinana á þýsku
Hér er kominn texti um íslensku jólasveinana og fjölskyldu þeirra á þýsku.
Orðaleikur
HÉR er hlekkur, beint inn á vef Orðaleiks. Þar er að finna kennsluleiðbeiningar, rafbækur með þematengdum orðasöfnum, góðar myndir til að nota til samræðu um daglegt líf og ýmislegt fleira gagnlegt.
Orðaleikur: Nýtt námsefni sem ætlað er leikskólabörnum
MSHA býður upp á kynningu á námsefninu Orðaleik, sem er ætlað leikskólabörnum sem læra íslensku sem annað mál. Kynningin verður haldin í Háskólanum á Akureyri, 23. október kl. 15:15 – 17:00 í stofu M101. Skráning á kynningu eða til að … Halda áfram að lesa