Greinasafn fyrir flokkinn: 2018
Uppfærð handbók
Handbók fyrir kennara sem eru að taka á móti erlendum nemanda/hafa erlenda nemendur í bekknum sínum hefur nú verið uppfærð. Nýja útgáfan er undir tengli hér til hægri Efni fyrir kennara.
Nýr tengill
Nú er kominn tengill hér til hægri á síðunni, inn á vefinn VELKOMIN, en hann er gott að nota með erlendum nemendum og foreldrum fyrstu skóladagana. Endilega kynnið ykkur hann, ef þið hafið ekki notað hann áður.
Sumarlæsisdagatal Menntamálastofnunar
Menntamálastofnun hefur gefið út sumarlæsisdagatal þar sem bent er á ýmsar skemmtilegar og óhefðbundnar leiðir til að styðja við lestur krakka í sumarleyfi. Dagatalið var gefið út bæði á ensku og pólsku, auk íslensku.
Skýrsla skólaársins 2017-2018
Í lok hvers skólaárs er gott að líta yfir farinn veg og skoða helstu verkefni og áherslur vetrarins. Nú er komin skýrsla yfir skólaárið 2017-2018 og hana má lesa hér. Ég þakka kennurum, nemendum og foreldrum fyrir samstarf vetrarsins og … Halda áfram að lesa
Quizlet tenglar
Þær Halla og Erna, kennarar í Brekkuskóla, sendu mér quizlet tengla sem geta nýst nemendum sem eru að læra íslensku vel. Kærar þakkir stelpur og tenglana má sjá hér!
Stöðumat tvö
Fyrr á þessu skólaári gerði ég stöðumat sem ég hef merkt nr. tvö, þar sem það er hugsað sem framhald af stöðumati sem ég hafði unnið fyrir nemendur sem hafa verið að læra íslensku í nokkra mánuði. Þetta nýrra mat … Halda áfram að lesa
Föstumánuður muslima – ramadan
Þetta árið hefst ramadan þann 16. maí og lýkur 14. júní. Samkvæmt muslimsku tímatali hefst hátíð við sólarlag næsta dags á undan, svo eflaust munu margir fagna ramadan við sólsetur í kvöld, þann 15. maí. Samkvæmt tímatali muslima er ramadan … Halda áfram að lesa
Myndaorðabækur á ýmsum málum
Á norsku síðunni Tema Morsmål má m.a. finna myndaorðabækur á ýmsum tungumálum. Íslenska er því miður ekki þar á meðal en mörg móðurmál nemenda okkar, s.s. pólska, tailenska, arabíska, rússneska o.fl. Góð síða til að heimsækja og tengja hugtök og … Halda áfram að lesa
Fögnum íslensku sem öðru tungumáli
Mánudaginn 7. maí n.k. mun Ísbrú, Félag kennara sem kenna íslensku sem annað tungumál, standa fyrir málþingi í safnaðarheimili Háteigskirkju. Dagskráin er fjölbreytt og spennandi, þar sem fulltrúar frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, sveitarfélögum, Háskóla Íslands, Menntamálastofnun og víðar að, munu … Halda áfram að lesa
Íslensk-pólsk hugtök
Þökk sé Emiliu Mlynska hefur enn bæst við hugtakalistann undir flipann pólska hér til hægri á síðunni, bæði nokkur fyrirmæli sem kennarar geta nýtt sér í samskiptum í bekk og hugtakaskýringar 10. kafla bókarinnar Á ferð um samfélag.