Greinasafn eftir: Helga Hauks
Íslenska fyrir Pólverja
Radek Duziak hefur búið á Íslandi í fyrir 20 ár og hefur stundað háskólanám síðustu ár, bæði hér og við hollenskan háskóla. Hann hefur einnig oft unnið fyrir okkur sem túlkur. Nú hefur hann gert myndbönd um íslenskukennslu fyrir Pólverja. … Halda áfram að lesa
Jóla, jóla….
Ætla að sjá hvort einhver jólaverkefni verða til næstu daga. Hér kemur ein lítil krossgáta – bæti svo við eftir efnum og aðstæðum… krossgáta, tenglasafn í ýmis verkefni og upplýsingar um jólasveinana á mörgum tungumálum, krossgáta II, Bráðum koma blessuð … Halda áfram að lesa
Stöldrum við andartak – kennarar og foreldrar!
Stundum er gott að staldra aðeins við og hugsa um stöðu nemenda sem eru tví- eða fleirtyngdir í bekknum okkar. Það sama á við um foreldra barna sem búa við fleiri en eitt tungumál í umhverfi sínu og uppvexti. Hvað … Halda áfram að lesa
Stærðfræðihugtök á rúmensku/íslensku
Fékk leyfi til að setja hér hlekk á fjölmenningarsíðu Kópavogs, þar sem búið er að útbúa hugtakalista á rúmensku/íslensku. Bestu þakkir, stöllur í Kópavogi! Slóðin er hér
Enn verkefni
Hér er verkefni þar sem nemendur þurfa að þýða stutta texta úr ensku og skrifa á íslensku. Gæti komið sér vel fyrir suma nemendur og gott að sjá færni þeirra í að skrifa stutta, samfellda texta. Slóðin hér
Fleiri verkefni
Hér kemur eitt sem mér finnst alltaf frekar skemmtilegt. Að para saman staðhæfingu um orð og heiti þess. Gefur líka tilefni til umræðna sem geta leiðst í ýmsar áttir. Slóð hér
Verkefni fyrir eldri nemendur
Stundum er gott að líta í gagnasafnið sitt! Þá finnst eitt og annað sem aldrei hefur ratað inn á vefinn eða í gagnasöfn. Hér er eitt slíkt, frekar fyrir eldri nemendur sem lesa stutta texta. Gjörið svo vel!
Verkefni fyrir byrjendur
Skutla hér inn einu litlu verkefni sem ég held að ég hafi ekki verið búin að setja hérna. Slóðin er hér
Íslenska – pólska
Vek athygli á námsefni á Skólavefnum, fyrir pólska nemendur sem eru að læra íslensku. Slóð hér. Einnig er að koma í bókabúðir ný barnaorðabók; íslensk-pólsk / pólsk íslensk.
Nokkrir lestextar
Hér eru nokkrir lestextar með verkefnum sem hægt er að skoða og prenta út.