Greinasafn fyrir flokkinn: 2018

Uppfærð handbók

Handbók fyrir kennara sem eru að taka á móti erlendum nemanda/hafa erlenda nemendur í bekknum sínum hefur nú verið uppfærð. Nýja útgáfan er undir tengli hér til hægri Efni fyrir kennara.

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Uppfærð handbók

Nýr tengill

Nú er kominn tengill hér til hægri á síðunni, inn á vefinn VELKOMIN, en hann er gott að nota með erlendum nemendum og foreldrum fyrstu skóladagana. Endilega kynnið ykkur hann, ef þið hafið ekki notað hann áður.

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Nýr tengill

Sumarlæsisdagatal Menntamálastofnunar

Menntamálastofnun hefur gefið út sumarlæsisdagatal þar sem bent er á ýmsar skemmtilegar og óhefðbundnar  leiðir  til að styðja við lestur krakka í sumarleyfi. Dagatalið var gefið út bæði á ensku og pólsku, auk íslensku.

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Sumarlæsisdagatal Menntamálastofnunar

Skýrsla skólaársins 2017-2018

Í lok hvers skólaárs er gott að líta yfir farinn veg og skoða helstu verkefni og áherslur vetrarins. Nú er komin skýrsla yfir skólaárið 2017-2018 og hana má lesa hér. Ég þakka kennurum, nemendum og foreldrum fyrir samstarf vetrarsins og … Halda áfram að lesa

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Skýrsla skólaársins 2017-2018

Quizlet tenglar

Þær Halla og Erna, kennarar í Brekkuskóla, sendu mér quizlet tengla sem geta nýst nemendum sem eru að læra íslensku vel. Kærar þakkir stelpur og tenglana má sjá hér!

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Quizlet tenglar

Stöðumat tvö

Fyrr á þessu skólaári gerði ég stöðumat sem ég hef merkt nr. tvö, þar sem það er hugsað sem framhald af stöðumati sem ég hafði unnið  fyrir nemendur sem hafa verið að læra íslensku í nokkra mánuði. Þetta nýrra mat … Halda áfram að lesa

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Stöðumat tvö

Föstumánuður muslima – ramadan

Þetta árið hefst ramadan þann 16. maí og lýkur 14. júní. Samkvæmt muslimsku tímatali hefst hátíð við sólarlag næsta dags á undan, svo eflaust munu margir fagna ramadan við sólsetur í kvöld, þann 15. maí. Samkvæmt tímatali muslima er ramadan … Halda áfram að lesa

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Föstumánuður muslima – ramadan

Myndaorðabækur á ýmsum málum

Á norsku síðunni Tema Morsmål  má m.a. finna myndaorðabækur á ýmsum tungumálum. Íslenska er því miður ekki þar á meðal en mörg móðurmál nemenda okkar, s.s. pólska, tailenska, arabíska, rússneska o.fl. Góð síða til að heimsækja og tengja hugtök og … Halda áfram að lesa

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Myndaorðabækur á ýmsum málum

Fögnum íslensku sem öðru tungumáli

Mánudaginn 7. maí n.k. mun Ísbrú, Félag kennara sem kenna íslensku sem annað tungumál, standa fyrir málþingi í safnaðarheimili Háteigskirkju. Dagskráin er fjölbreytt og spennandi, þar sem fulltrúar frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, sveitarfélögum, Háskóla Íslands, Menntamálastofnun og víðar að, munu … Halda áfram að lesa

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Fögnum íslensku sem öðru tungumáli

Íslensk-pólsk hugtök

Þökk sé Emiliu Mlynska hefur enn bæst við hugtakalistann undir flipann pólska hér til hægri á síðunni, bæði nokkur fyrirmæli sem kennarar geta nýtt sér í samskiptum í bekk og hugtakaskýringar 10. kafla bókarinnar Á ferð um samfélag.

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Íslensk-pólsk hugtök