Íslensk-pólsk hugtök

Þökk sé Emiliu Mlynska hefur enn bæst við hugtakalistann undir flipann pólska hér til hægri á síðunni, bæði nokkur fyrirmæli sem kennarar geta nýtt sér í samskiptum í bekk og hugtakaskýringar 10. kafla bókarinnar Á ferð um samfélag.

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Íslensk-pólsk hugtök

Pólskar bækur komnar í skráningu

Í dag fór ég á Amtsbókasafnið með um 40 pólskar barna- og unglingabækur í frumskráningu. Þegar skráningu þeirra lýkur Myndaniðurstaða fyrir polskivænkast aðeins hagur pólskra nemenda okkar á Akureyri með að ná sér í lestrarefni á móðurmáli sínu. Þessar bækur eru allar gjöf frá pólska sendiráðinu.

 

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Pólskar bækur komnar í skráningu

Bækur á erlendum tungumálum

Í gær fékk ég senda slóð að netbókabúð sem kennarar hafa góða reynslu af og hafa verslað við. Þar er hægt að leita að bókum sem hæfa tilteknum aldri nemenda, leita eftir efnisflokkum og fleiru. Slóðin er hér

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Bækur á erlendum tungumálum

Er fyrsta lóan nokkuð komin?

Síðast í mars heyrum við það gjarnan í fréttum að fyrsta lóan sé komin. Flestar koma þær þó í aprílmánuði og fram í maí. Í tilefni af gróanda og komu farfuglanna er hér eitt lítið íslenskuverkefni um lóuna.
Munum líka eftir frábærum fuglavef Menntamálastofnunar  en þar er hægt að hlusta á hljóð fuglanna, auk þess að viða að sér ýmsum fróðleik, lesa úr kortum o.fl.

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Er fyrsta lóan nokkuð komin?

Eitt lítið verkefni

Set hér eitt lítið verkefni sem ég var að gera – þarf bara að plasta og klippa út.
Markmið: Að auka tilfinningu nemenda fyrir uppbyggingu setninga og orðaröð. Lesa og ræða, gera verkefni og hugsanlega nota sem sóknarskrift.

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Eitt lítið verkefni

Á ferð um samfélag

Nú voru að bætast við pólskar hugtakaskýringar úr kafla tvö úr bókinni Á ferð um samfélag. Eins og áður þökkum við Emiliu Mlynska fyrir þessa ómissandi aðstoð. Hugtakalista 2. kafla má sjá hér og hann er líka kominn undir flipann pólska hér neðar til hægri á síðunni.

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Á ferð um samfélag

Móðurmálskennsla

Nú á vorönninni 2018 fer fram móðurmálskennsla í pólsku og arabísku á Akureyri. Allir eru ánægðir með að krakkarnir eigi nú loks kost á formlegri kennslu í móðurmáli sínu og þrói það og bæti við þekkingu sína í því, samhliða íslenskunámi.
Pólski sendiherann, Gerard Pokruszynski, kom í heimsókn með konu sinni, í tíma til pólskra nemenda, kennara þeirra og foreldra í byrjun mars. Anna, pólski kennarinn, hafði skipulagt kennslu sem allir gestir tóku þátt í og þetta var mjög skemmtileg stund. Gerard hafði auk þess með sér margar pólskar bækur sem munu eignast samastað innan grunnskóla bæjarins. Kærar þakkir fyrir okkur!

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Móðurmálskennsla

Viðbót við pólsk-íslenska hugtakalista: Á ferð um samfélag

Enn hefur Emilia Mlynska bætt við  hugtakalista á pólsku og íslensku, nú 1. kafla úr bókinni Á ferð um samfélag. Listann má sjá hér og einnig er hann kominn undir flipann pólska – hér til hægri á vefnum. Takk Emilia!

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Viðbót við pólsk-íslenska hugtakalista: Á ferð um samfélag

Læsisráðin – Lengi býr að fyrstu gerð

Læsisráðin, sem bera heitið Lengi býr að fyrstu gerð, eru handhæg ráð sem bæði foreldrar og kennarar geta nýtt sér til að styðja við málþroska barna. Menntamálastofnun hefur látið þýða þau bæði á ensku og pólsku. Hér er íslenska útgáfan og ensku og pólsku þýðingarnar má finna undir tungumálaflipunum til hægri á síðunni.

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Læsisráðin – Lengi býr að fyrstu gerð

Fyrsti fræðslufundur af fimm

Í gær, mánudag 22. janúar, mættu 40 kennarar á fyrsta fræðslufund af fimm, um menningu, samskipti og kennslu nemenda af erlendumuppruna, í sal Brekkuskóla.
Við munum hittast næst mánudaginn 5. febrúar og þá mun Kristín Vilhjálmsdóttir, frá Borgarbókasafninu, m.a. segja frá verkefni sínu um menningamót – fljúgandi teppi.

Birt í 2018 | Slökkt á athugasemdum við Fyrsti fræðslufundur af fimm